Grein Barkar Gunnarssonar, „Heilagt stríð Vantrúar“, sem birtist í Morgunblaðinu 4. desember 2011 (s. 18- 21) vakti athygli mína á þessu undarlega máli. Skrif á ýmsum netmiðlum í kjölfarið urðu svo til að þess að renna stoðum undir ... · 8/1 2012 · 8 ummæli
Hér er því lýst hvernig Sveinn Kristinsson forseti bæjarstjórnar Akraness hefur með framkomu sinni við tvo kennara, sprottinni af illskiljanlegum toga, komið því til leiðar að þessir tveir kennarar, Bjarni Þór Bjarnason og Hrönn ... · 26/11 2011 · 7 ummæli
Ég er loksins að krafla mig upp úr helvítisdvölinni ... nú hef ég fengið þrjá góða daga í röð (sem helgast að hluta af þremur góðum nóttum í röð, þökk sé ágæti svefnlyfsins sem ég tek með góðri samvisku og blæs á ... · 7/11 2011 · 10 ummæli
Eins og flestum velupplýstum ætti að vera kunnugt er ég fremst fræðikatta landsins og þekkt langt út fyrir landsteinana. Hingað til hef ég verið of önnum kafin við ýmsar rannsóknir, einkum mannfræðirannsóknir, til að eyða tíma í ... · 31/10 2011
Fékk Fallið eftir Þráin Bertelsson á því góða bókasafni í gær og las í gegn, sem tekur enga stund. (Af tilviljun sá ég að í hillu nýrra bóka var Fallið við hlið Morðs og möndlyktar Camillu Läckberg, afspyrnu lélegs reyfara og ... · 19/10 2011 · 19 ummæli
Ef þetta er eina leiðin til að losna við Gunnar Smára Egilsson úr formannsstóli SÁÁ mæli ég eindregið með aðferðinni og hvet sem flesta til að segja sig úr þessum fyrrum ágæta félagsskap strax í dag! Málflutningur formanns SÁÁ ... · 6/9 2011 · 24 ummæli
Í Íslenzku fornbréfsafni (Diplomatarium Islandicum) kennir ýmissa grasa. Þar á meðal er skrá um illa daga, öllu heldur illar stundir á illum dögum, sem ber sérstaklega að varast, einkum í sambandi við lækningar. Má ætla að algerlega ... · 31/8 2011
Undanfarið hef ég aðeins fylgst með athugasemdum við fréttir af því að kínverskur auðmaður hafi keypt Grímsstaði á Fjöllum og Grímstungu að hluta og hyggist byggja þar hótel. (Líklega er þó réttara að umræddur Kínverji ætli að ... · 30/8 2011 · 2 ummæli
Fyrir hálfum mánuði þurfti ég að fara til borgar óttans og til að gera ferðina álitlegri og skaffa góða dúsu fyrir svo leiðinlega ferð setti ég Bókasafn Norræna hússins á planið: Kom heim með tvo poka af bókum, álíka þunga og 2 ... · 24/8 2011 · 3 ummæli
„Þorvaldur Friðriksson ber saman íslensku og gelísku: Mörg orð og nöfn í íslensku eiga sér enga hliðstæðu í norrænum málun [svo] en finnast í gelísku“ heitir viðtal í Skessuhorni 10. ágúst 2011, s. 22. Þorvaldur þessi er ... · 17/8 2011 · 2 ummæli
Í gær byrjuðu vangaveltur um orðið tvískynjungur á þræði eins FB-vinar míns. Ýmsar uppástungur að merkingu hafa borist enda er orðið munaðarlaus ómagi svo að segja og sárvantar merkingu! Tvískynjungur er einmitt orð sem manni finnst ... · 15/8 2011 · 4 ummæli
Sumir segja að það sé vandlifað í þessum heimi. Það kann að vera rétt en ég get einnegin staðfest að það er vandbloggað! Hvað er við hæfi að kona á mínum aldri tjái sig um? Hvað má kona á mínum aldri segja á facebook og ... · 12/8 2011 · 7 ummæli
Í rauninni fjallar þessi færsla um málfar og málfarsfasisma en þó einnig um sjoppur ... eða ætti ég að segja „söluturna“? Það er að því leytinu ankannalegt að sjaldnast er um turna að ræða ... Flestar konur á mínum aldri hafa ... · 6/8 2011 · 6 ummæli
Enn vinn ég að næstu færslu um SSA (Sögu Sögu Akraness) og er sammála þeim þrautreynda söguritara að heimildaleit og úrvinnsla heimilda getur verið tímafrek. Reikna þó með að geta hnoðað saman næstu færslu fyrir helgi ... ekki að ... · 4/5 2011 · 6 ummæli